Í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2015-2018 frá meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar kemur fram að svigrúm sé til staðar til þess að hefja gerð Seyðisfjarðarganga samhliða gerð Dýrafjarðarganga. Áætlað er að framkvæmdir hefjist við Dýarfjarðargöng að loknum Norðfjarðargöngum.
Í nefndarálitinu stendur:
“Jarðgöng.
Nú er unnið að framkvæmdum við gerð Norðfjarðarganga. Framkvæmdir hófust árið 2013 og áætlað er að þeim ljúki 2017. Er þá lagt til að framkvæmdir verði hafnar við Dýrafjarðargöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum. Meiri hlutinn áréttar að svo að hægt verði að hefja framkvæmdir við Dýrafjarðargöng þurfi heimild í fjárlögum og samþykkta samgönguáætlun. Þá er á árunum 2015–2018 gert ráð fyrir að unnið verði að jarðfræðirannsóknum í væntanlegu gangastæði Seyðisfjarðarganga en meiri hlutinn telur að svigrúm sé nú til staðar til að hefja gerð Seyðisfjarðarganga samhliða gerð Dýrafjarðarganga.”
Í nefndarálitinu kemur einnig fram að jarðgöng gegni miklu mikilvægi fyrir tengingu byggðalaga og stækkun atvinnusvæða og sé í raun einnig mikilvægt kynjajafnréttismál. Í því ljósi var stuðst við rannsókn sem unnin var við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, þar sem rannsökuð var staða kynjanna. En rannsóknin bendir til þess að jarðgöng hafi jákvæð áhrif á atvinnutækifæri og atvinnusókn kvenna, þeim standi til boða fjölbreyttari störf. “Þessar vísbendingar um breytt ferðamynstur kvenna eru afar jákvæðar og gefa til kynna að gerð jarðganga á landsbyggðinni þar sem þéttbýliskjarnar eru tengdir betur saman til að skapa stærra atvinnusvæði hafi jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna.”